15.5.2009 | 13:53
Handikap í Nauthólsvík
Fyrst er byrjað á tímatöku á þessari 6 km leið.
Útlistun á handikap
Sá sem á versta tíman segjum bara 43mín fyrir ræsingu leggur af stað og klukkan er ræst, ef næsti er með bestan tíma 38 mín þá leggur hann af stað 5 mín á eftir og sá sem á bestan tíma 33 mín leggur svo af stað 5 mín á eftir mér o.s.frv
Það er samt alltaf ræst á heilli mínútu þannig að ef sá/sú sem á lakasta 42,35 þá er klukkan sett af stað og 25 sek síðar leggur viðkomandi af stað.
Ef viðkomandi síðan bætir sinn tíma um 2 mín en sá sem átti bestan tíma 33 mín stendur í stað þá leggur viðkomandi næst 3 mín á undan viðkomandi af stað og hef því "tapað" 2 mín af sínu handikappi (forgjöf).
Sigurvegarinn hverju sinni fær síðan 1000 stig og síðan fær 2. sætið -1 stig fyrir hverja sekúndu sem hann/hún er á eftir og svo koll af kolli 3 mín á eftir 1. sæti er 1000(stig) - (3*60sek) = 820stig
3.5.2009 | 10:14
Fyrstu keppni ársins lokið - RVK bikar 2009
21.4.2009 | 08:24
Viper seldur
Hilmar Erlendsson keypti Viperinn eftir að hafa prófað hann nokkrum sinnum. Hann tók strax við að breyta bátnum til að gera hann hæfari á sjó og löglegan til keppnisþátttöku. Hann er búinn að setja í hann skilrúm að framan og aftan (sjá myndir) en bönd og lúgur koma síðar. Þetta var í raun alveg bráðnauðsynlegt því hann var búinn að prófa að fara á hvolf nokkrum sinnum og þó svo að hægt sé að komast í svona bát aftur á auðveldan hátt þá er hann fullur af sjó eftir að hafa hvolft og er þá alveg sama hversu góð félagabjörgun eða kúrekainnstungan er. Við erum búnir að prófa græjuna með ýmsum sætisútfærslum, báturinn kemur með venjulegu keppnis sæti með engum mjaðmastuðning sem gerir hann mjög óstöðugan. Ekki skánar það þegar snúningssætið er komið í bátinn en það venst samt ótrúlega fljótt þegar haldið er stöðugum róðratakti. Það sem kom mér mest á óvart er hvað báturinn fær góða eiginleika ef sætið er tekið úr honum og róið á dýnu því þá verður jafnvægið mun betra þar sem þyngdarpunktur færist neðar og aftar þar sem breyddin er meiri. Til samanburðar við aðra báta er fyrsti stöðugleiki mjög góður og með auknum stöðuleika með mjaðmastuðning verður spennandi að sjá hvaða hraða hann býður upp á. Á sléttum sjó er tiltölulega auðvelt að halda 11 km/klst og á spretti fer hann upp fyrir 14 km/klst, það breytist hins vegar fljótt í öldu og vind. Við Hilmar rérum nokkra spretti saman eftir breytingar og þetta er allt annar bátur hvað stöðugleika varðar og hraðinn er ógurlegur.
23.3.2009 | 11:02
Dagsetningar fyrir keppnir sumarsins komnar hjá Kayakklubbnum
Flokkun | Dags. | Viðburður | Tengiliður | |
K | R | 30. apríl fid. | Elliðaár-ródeó | Keppnisnefnd |
K | S | 2. maí laugard. | Reykjavíkurbikar | Keppnisnefnd |
U | S | 9. maí laugard. | Skorradalsvatn | Sveinn |
U | R | 16. maí laugard. | Hvítárferð | Gummi J. 899 7516, Heiða 867 3755 |
U | S | 21.-24. maí | Reykjanes | Ísfirðingar |
N | S | 28.-29. maí | BCU námskeið | Kaj |
UN | S | 29.-31. maí | Egill Rauði | Kaj |
K | S | 31. maí, sunnud. | Sprett- og veltukeppni | Kaj |
U | S | 1.-3. júní | Stjáni Blái Egilsstöðum | Karl Jörgensen og Þorst. Sigurlaugs |
U | S | 6. júní, laugard. | Suður með sjó | Andri 699 5449 |
U | R | 13.-14. júní | Galtaleikar | Gummi J. Anna Lára 824 6245 |
K | S | 20. júní, laugard. | Bessastaðabikar | Keppnisnefnd |
U | S | 23. júní, þriðjud. | Jónsmessuróður | Ferðanefnd |
UK | R | 27. júní, laugard. | Tungufljótskappróður | Gummi J. 899 7516 |
S | 29. júní, mánud. | Marcus Demuth | Kaj | |
U | S | 3.-5. júlí | Arnarstapi-Hellnar | Gísli H.F. 822 0536 |
K | S | 11. júlí, laugard. | Suðureyri, 10 km | Ísfirðingar |
U | RS | 17.-19. júlí | Kayakdagar Skagafirði | Anna Lára 824 6245 |
S | 31. júlí, föstud. | Marcus Demuth | ||
U | S | 7.-9. ágúst | Króksfj.-Reykh.-Akureyjar | Reynir T. 824 5444 |
U | R | 15. ágúst, laugard. | Hvítá | Anna Lára, Gummi J., Heiða 8673755 |
K | S | 5. sept. laugard. | Hvammsvíkur-maraþon | Keppnisnefnd |
K | R | 5. sept. laugard. | Haustródeó | Keppnisnefnd |
U | S | 20. sept. sunnud. | Þingvallavatn | Sævar 864 7407 |
R: | Straumkayak | |||
S: | Sjókayak | |||
K: | Keppni | |||
U: | Útivist | |||
N: | Námskeið |
11.12.2008 | 13:57
Árlega surfski keppnin í Dubai 2. desember 2008
Keppnin var ansi merkileg að þessu sinni því nokkrum af bestu sléttvatns ræðurum heims var boðið að taka þátt. Hér fyrir neðan er linkur á úrslitin en það er skemmst frá því að segja að sléttvatns ræðararnir voru teknir í bakaríið og voru ekki á meðal efstu manna. Ólympíumeistarinn Tim Brabants lenti í fertugasta sæti og silfurhafinn Eric Larsen í þrítugasta sæti. Á heimasíðu sinni skrifar Larsen stuttan pistil um keppnina og útlistar kunnáttuleysi sitt í að surfa á surfski. Tim Jacobs frá Ástralíu vann á tímanum 1:42:93.7 sem þýðir að meðalhraði hans var 17,4 km/klst á 30 km!!
http://www.dubaishamaal.com/race_results.php
6.11.2008 | 10:26
Frægðarhöll sjókayakræðara
Á paddler magazine on line er búið að setja upp síðu með nokkrum helstu afrekum á sjókayak. Ansi athygliverð lesning:
http://www.paddlermagazine.com/issues/2003_4/article_221.shtml
6.11.2008 | 10:08
Nýr en gamall bátur í flotann
3.10.2008 | 09:03
Kayakklúbburinn Sviði á Álftanesi eignast nýja aðstöðu
2.10.2008 | 16:06
Surfski keppni í fyrsta sinn á norðurlöndum
Keppnin var haldin 1 September , 2007 nálækt Arkösundi. Ekki ófrægari kappi en Oscar Chalupsky tók þátt í keppninni og sigraði nokkuð örugglega. Oscar hélt meðalhraða upp á 12,5 km/klst í Þessari 20 km keppni og var 4 mín á undan næsta manni. Gaurinn er goðsögn á meðal kayakmanna, hann hefur unnið Molokai surfski keppnina á Hawaii 11 sinnum ásamt ótal sigrum um allan heim. Á Íslandi eru ekki til nein surfski að ég best veit en þau eru mjög álitlegur kostur fyrir keppni við ákveðnar aðstæður. Þau eru mjó (oft undir 45 cm) og löng (oft vel yfir 6 m) þannig að þau ná miklum hraða. Munurinn á hefðbundnum kayak og surfski er sá að á surfski er maður ekki lokaður inni í bátnum með svuntu, heldur er setið ofan á skíðinu í sæti sem útbúið er þannig að það tæmir sig sjálft ef sjór sullast inn. Þá er stýrið stórt og staðsett undir bátnum nálægt sæti þannig að lítil hætta er á að það beri sig þegar siglt er undan öldu. Ef farið er á hvolf á surfski er einungis hoppað uppá aftur án þess að þurfa að tæma mannopið. Þetta eru því á margan hátt áhugaverðar græjur sem henta vel til siglinga í stórri öldu. Hér er linkur á Oskar sem er annar eigenda Epic kayaks ásamt link á keppnina í Svíþjóð.
http://www.epickayaks.com/about/oscarchalupsky
http://www.nomado.se/sssc2007.php
25.9.2008 | 14:07
Heimsmeistaramótið í kayakmarathonróðri 2008
Mótið var haldið 20-21 september í Tékklandi. Það var Spánverjinn Merchan Emilio sem sigraði, hann réri 30.1 km á 2 klst 10 mín en heimamaðurinn Jezek Thomas var aðeins 0,8 sek á eftir honum. Emilio er búinn að vera ósigrandi síðustu misseri en er þó ekki að vinna með miklum mun í hvert skipti en sigrar með góðri taktík á loka metrunum. Meðalhraðinn hjá honum var rúmir 13,9 km/klst!!. Í kvennaflokki sigraði Follath Vivien frá Ungverjalandi en hún réri 25,8 km á 2:01:04.49 (meðalhraði 12,79!!). Til gamans má geta að í flokkunum eldri en 60 ára voru um 30 keppendur sem kláruðu keppnina í karlaflokki. Það er aðdáunarvert að sjá fólk á þessum aldri í svona góðu formi til að geta hlaupið með kayaka og róið þessar vegalengdir á þetta miklum hraða.
Sjá nánar um keppnina:http://www.canoemar.cz/2008/main.php