Vel heppnuðu surfskinámskeiði lokið

Það er ekki laust við smá þreytu eftir stíft námskeið yfir helgina. Við Hilmar vorum sammála um að þetta var eitthvað sem hefðum ekki vilja missa af. Námskeiðið var bæði í formi fyrirlestra um surfskiheiminn og allt sem snýr að þessari skemmtilegu kayakmennsku. Okkur gafst tækifæri á að kynnast heimsþekktum ræðurum á borð við Tommy Karls og Paul Rosinquist. Andrúmsloftið var var einstaklega vinalegt og voru allir tilbúnir til að miðla af visku sinni. Þá gafst okkur tækifæri að prófa ótrúlega margar gerðir af Surfskíðum og árum frá ýmsum framleiðendum. Ég mun setja nánari umfjöllun um námskeiðið ásamt myndum á síðuna síðar.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband