Fyrstu keppni ársins lokið - RVK bikar 2009

Það er óhætt að segja að veðurguðirnir hafi ekki verið hliðhollir kayakmönnum í þessari fyrstu keppni ársins sem haldin var í kjölfar lægðar sem gengið hafði suður fyrir landið um nóttina. Rok, haglél, stormur og rigning, þetta var allt á sínum stað. Þetta var fjórða RVK bikarkeppnin mín og það er reyndar þannig við Geldinganesið að ef það er slæmt veður í Reykjavík eða jafnvel smá gola, þá er slæmt veður þar. Þetta var hins vegar fyrsta keppni sem ég hvolfi í enda var öldulag mjög slæmt við V-enda nesins. Með dyggri aðstoð frá Hilmari Erlendssyni tókst okkur með félagabjörgun að koma mér á réttan kjöl oní bátinn aftur. Það sem eftir var keppninnar var róið með 20-30L af sjó gutlandi í bátnum sem jók en á ójafnvægið. Eftir veltu var ég kominn á eftir nokkrum bátum en tókst að klára í öðru sæti á eftir Haraldi Njálssyni og rétt á undan Hilmari. Það voru engin brautarmet sett í ár og einhverjir fóru á hvolf við þessar aðstæður. Það er óskandi að þetta sé ekki vísir að veðri í keppnum sumarsins þannig að fleiri geti tekið þátt og jafnvel mætt á staðinn utan af landi. Í það mynsta mætti flytja keppnina á skárri stað þegar veðrið er jafn slæmt og það verður gjarnan í kringum geldinganesið.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband