Viper seldur

Hilmar Erlendsson keypti Viperinn eftir að hafa prófað hann nokkrum sinnum. Hann tók strax við að breyta bátnum til að gera hann hæfari á sjó og löglegan til keppnisþátttöku. Hann er búinn að setja í hann skilrúm að framan og aftan (sjá myndir) en bönd og lúgur koma síðar. Þetta var í raun alveg bráðnauðsynlegt því hann var búinn að prófa að fara á hvolf nokkrum sinnum og þó svo að hægt sé að komast í svona bát aftur á auðveldan hátt þá er hann fullur af sjó eftir að hafa hvolft og er þá alveg sama hversu góð félagabjörgun eða kúrekainnstungan er. Við erum búnir að prófa græjuna með ýmsum sætisútfærslum, báturinn kemur með venjulegu keppnis sæti með engum mjaðmastuðning sem gerir hann mjög óstöðugan. Ekki skánar það þegar snúningssætið er komið í bátinn en það venst samt ótrúlega fljótt þegar haldið er stöðugum róðratakti. Það sem kom mér mest á óvart er hvað báturinn fær góða eiginleika ef sætið er tekið úr honum og róið á dýnu því þá verður jafnvægið mun betra þar sem þyngdarpunktur færist neðar og aftar þar sem breyddin er meiri. Til samanburðar við aðra báta er fyrsti stöðugleiki mjög góður og með auknum stöðuleika með mjaðmastuðning verður spennandi að sjá hvaða hraða hann býður upp á. Á sléttum sjó er tiltölulega auðvelt að halda 11 km/klst og á spretti fer hann upp fyrir 14 km/klst, það breytist hins vegar fljótt í öldu og vind. Við Hilmar rérum nokkra spretti saman eftir breytingar og þetta er allt annar bátur hvað stöðugleika varðar og hraðinn er ógurlegur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband