Nýr en gamall bátur í flotann

Eftir miklar pælingar keypti ég gamla bátinn hans Haraldar Njálssonar á dögunum. Þetta er bátur af gerðinni Quest frá P&H sem ætlaður er til lengri ferðalaga (sjá myndir í albúmi). Ég prófaði svona bát fyrir 2 árum síðan en hef í raun ekki siglt þessari gerð við erfiðar aðstæður. Hann er útbúinn með fótstíginni dælu, áttavita og skeggi en einnig er möguleika að smella á hann stýri. Rúmmálið er gott en lengd og breidd eru í meðallagi. Reyndar hef ég lesið að rúmmál frammlestar mætti vera meira fyrir lens en það á eftir að koma í ljós. Báturinn er bæði skemmdur á stefni eftir brimróður og heilmikið lemstraður eftir mikla notkun, það er eins og Halli hafi sigl honum nokkrum sinum niður Skjálfandafljót. viðgerð er þegar hafin og vonast ég til að geta prófað hann um næstu helgi. Þetta er ágæt viðbót við þá báta sem ég á þegar sem henta aðallega til keppnisróðurs. Questinn verður góður í ferðalög, félagaróðra og til að leyfa byrjendum að prófa. Þetta er annar enski báturinn sem ég eignast (hinn var Valley Rapier 20) en hefðin fyrir hönnun sjókayaka er mikil í Englandi. Einn af goðsögnum sjókayakmenningar er englendingurinn Derek C. Hutchinson og eru margar bækur hans um róður eru skildulesning fyrir sjókayakræðara.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband