Kayakklúbburinn Sviði á Álftanesi eignast nýja aðstöðu

Laugardaginn 27 september lögðu 6 bátar upp frá Nauthólsvík fyrir Álftanes til að heimsækja nýja aðstöðu Kayakklúbbsins sviða á Álftanesi. Vindur blés hressilega að suð-vestan og því var góð alda og mótvindur á leiðinni. Aldan tók hressilega á köflum og var unun að sjá félagana taka á henni af snild.  Menn voru nokkuð slæptir á áfangastað eftir barninginn, sérstaklega eftir erfiða brimlendingu(sjá myndir sem Trygggi sendi mér teknar af Steina X). Menn hresstust þó fljótlega eftir að hafa fengið kaffi og kakó með bakkelsi hjá meðlimum Sviða. Búið er að setja upp bráðabirgðaaðstöðu með tveim gámum með rennandi vatni og rafmagni með snyrtilegum palli fyrir utan á besta stað á sunnanverðu nesinu. Komnar eru teikningar að 200 fermetra húsi á sama stað. Á bakaleiðinni var veðrið aðeins gengið niður og þægilegur lens undan öldu í Nauthólsvík. Við tók lokahóf Kayakklúbbsins í félagsaðstöðu sportkafaraklúbbsins í Nauthólsvík.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband