Heimsmeistaramótið í kayakmarathonróðri 2008

Mótið var haldið 20-21 september í Tékklandi. Það var Spánverjinn Merchan Emilio sem sigraði, hann réri 30.1 km á 2 klst 10 mín en heimamaðurinn Jezek Thomas var aðeins 0,8 sek á eftir honum. Emilio er búinn að vera ósigrandi síðustu misseri en er þó ekki að vinna með miklum mun í hvert skipti en sigrar með góðri taktík á loka metrunum. Meðalhraðinn hjá honum var rúmir 13,9 km/klst!!. Í kvennaflokki sigraði Follath Vivien frá Ungverjalandi en hún réri 25,8 km á 2:01:04.49 (meðalhraði 12,79!!). Til gamans má geta að í flokkunum eldri en 60 ára voru um 30 keppendur sem kláruðu keppnina í karlaflokki. Það er aðdáunarvert að sjá fólk á þessum aldri í svona góðu formi til að geta hlaupið með kayaka og róið þessar vegalengdir á þetta miklum hraða.

Sjá nánar um keppnina:http://www.canoemar.cz/2008/main.php


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband